14 Mars 2016 17:43

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Kirkjuteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.