21 Maí 2010 12:00

Brot 85 ökumanna voru mynduð á Háaleitisbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háaleitisbraut í vesturátt, norðan Miklubrautar og gegnt Safamýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 324 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52. 

Mælingarnar á í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Háaleitisbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Háaleitisbraut en þá óku hlutfallslega ívið fleiri, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 62% en í kjölfarið var gripið til hraðahindrandi aðgerða sem virðast hafa skilað árangri eins og tölurnar á milli ára bera með sér.