19 Nóvember 2014 12:00

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Háaleitisbraut í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háaleitisbraut í norðurátt, við Austurver. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 319 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73. 

Vöktun lögreglunnar á Háaleitsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.