1 Mars 2022 11:36

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Háaleitisbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háaleitisbraut í norðurátt, á móts við Háaleitisbraut 77-81. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 242 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Háaleitisbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.