28 Maí 2009 12:00

Níutíu og fjórir voru staðnir að hraðakstri á Háaleitisbraut í Reykjavík í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 94 ökumanna mynduð á Háaleitisbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, norðan Miklubrautar og gegnt Safamýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 326 ökutæki þessa akstursleið og því óku 29% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Háaleitisbraut og þá óku 62% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var ennþá meiri umferð um götuna (371 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var tæplega 46 km/klst. Eftir vöktun lögreglunnar í fyrra var gripið til hraðahindrandi aðgerða sem virðast hafa skilað árangri eins og tölurnar á milli ára bera með sér.