26 Febrúar 2015 14:24

Brot 139 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, að gatnamótum Fjarðarhrauns og Álftanesvegar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 563 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.