14 Október 2010 12:00

Brot 154 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, gegnt Akrahverfi í Garðabæ. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.125 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 112.