30 Nóvember 2010 12:00

Brot 239 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðausturátt, norðan við gatnamót Reykjavíkurvegar, Álftanesvegar og Fjarðarhrauns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 864 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111. 

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni.