25 Júlí 2017 16:14

Brot 124 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 916 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.