14 September 2017 08:31

Brot 152 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 701 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sautján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 116.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.