21 Desember 2009 12:00

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarnesveg en á þessum stað varð banaslys í síðustu viku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.176 ökutæki þessa akstursleið og því óku 4% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.