12 Apríl 2018 15:39

Brot 148 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 986 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 105.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.