25 Júní 2018 14:10

Brot 117 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 688 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sautján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 121.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.