28 Janúar 2020 13:55

Brot 82 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 664 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og krapaþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.