3 Mars 2020 12:00
Brot 111 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 611 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sautján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.
Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.