24 Júní 2014 12:00

Brot 74 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, sunnan Arnarnesvegar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 674 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 105.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.