1 Apríl 2020 23:03

Brot 118 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 734 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 96 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og fimm óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 124.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur var á meðan hraðamælingunni stóð.