20 Apríl 2020 21:36

Brot 122 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 525 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 143.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.