3 Nóvember 2020 15:17

Brot 77 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 525 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Níu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.