28 Janúar 2015 18:02

Brot 88 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 775 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.