8 Janúar 2016 18:56

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarnesbrú. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 772 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 91 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.