10 Maí 2024 11:04
Brot 103 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 978 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrettán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 118.
Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.