8 Desember 2014 13:50

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.013 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.