15 Ágúst 2019 12:44

Brot 85 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, á móts við Fífuhvamm. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 991 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 119.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.