6 Maí 2020 11:57

Brot 181 ökumanns var myndað á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, að Fossvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.411 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sextán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 117.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.