5 Nóvember 2021 14:44

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Dalbrekku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.432 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.