28 Febrúar 2022 10:16

Brot 21 ökumanns var myndað á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, að Kópavogslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 858 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.