11 Maí 2022 09:50

Brot 114 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, að Kópavogslæk. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 913 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 118.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.