2 Nóvember 2015 15:23

Brot 95 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, á móts við Fífuhvamm. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.404 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 105.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.