3 Maí 2018 11:42

Brot 122 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, á móts við Fífuhvamm. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.495 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 116.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.