15 Október 2018 11:19

Brot 146 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, á móts við Fífuhvamm. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.480 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 105.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.