5 Febrúar 2008 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Hagamel í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hagamel í vesturátt að Reynimel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 43 km/klst en við síðustu vöktun á sama stað var meðalhraði hinna brotlegu rúmlega 48. Þarna er 30 km hámarkshraði en tveir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðar ók mældist á 55. 

Eftirlit lögreglunnar á Hagamel kom í kjölfar ábendinga frá íbúum í hverfinu.