5 Desember 2012 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í vesturátt, við Þverveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Hallsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.