15 Mars 2013 12:00

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í austurátt, við Þverveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Hallsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.