3 Desember 2013 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í vesturátt, við Þverveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 83 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Hallsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.