9 September 2014 12:00

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í vesturátt, við Þverveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Hallsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.