15 Júní 2022 13:32

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í vesturátt, að Strandvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 143 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Hallsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.