2 Febrúar 2023 09:11

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í vesturátt, að Strandvegi/Gullinbrú. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 161 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Hallsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.