24 Júní 2008 12:00

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.