16 Júní 2017 15:41

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Háteigsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.