22 Október 2009 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í austurátt, að Meðalholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.