8 September 2010 12:00

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, við Háteigsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því ók nálægt þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Háteigsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.