31 Maí 2011 12:00

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 33-43% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 42-44 km/klst.