15 Júní 2015 17:38

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Háteigsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.