3 Mars 2016 09:47

Brot 31 ökumanns var myndað á Háteigsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í austurátt, á móts við Háteigsveg 48. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 70 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Háteigsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.