18 Júní 2009 12:00

Fjörutíu og sex voru staðnir að hraðakstri á Háteigsvegi í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 46 ökumanna mynduð á Háteigsvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Vatnsholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 140 ökutæki þessa akstursleið og því óku 33% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 52.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Háteigsvegi en þá óku 34% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var aðeins meiri umferð um götuna (152 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var tæplega 44 km/klst.