29 Febrúar 2008 12:00

Brot fjörutíu og tveggja ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi sl. þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, nærri Reykjahlíð. Á einni klukkustund, síðdegis,  fóru 111 ökutæki þessa akstursleið og því ók stór hluti ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 65.

Eftirlit lögreglunnar á Háteigsvegi kom í kjölfar ábendingum frá íbúum í hverfinu. Þeir höfðu áhyggjur af hraðakstri í götunni og sögðu bera á honum einkum síðdegis. Niðurstaða vöktunarinnar sýnir að áhyggjur íbúanna eru á rökum reistar.