24 Ágúst 2017 15:29

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, á móts við Hjallaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.