9 Júní 2022 14:25

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í vesturátt, að Breiðvangi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 237 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn,  eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.