16 September 2009 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í norðurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók nálægt fjórðungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu en við götuna er fyrrnefndur skóli.